Hitaveitugjöld í Hveragerði hafa stórhækkað frá árinu 2008 og Hvergerðingar þannig látnir súpa seiðið af glæfralegri skuldasöfnun og slæmum rekstri OR sem bæjarfélagið á ekkert í. Skuldir OR eru um 250 milljarðar og svo miklar að taka verður þær út fyrir sviga þegar fjallað er um allar skuldir sveitarfélaga á Íslandi. OR hefur tekist að spila svo rassinn úr buxunum í fjármálum og rekstri að ekki tekur nokkru tali.
OR hefur rembst einsog rjúpan við staurinn að fá leyfi til að virkja á Bitru þrátt fyrir að sýnt hefur verið fram á að það muni rýra mjög loftgæði í Hveragerði og hafa ýmis önnur neikvæð áhrif fyrir íbúa Hveragerðis og nágrennis. Er þó þegar meira en nóg komið af mengun frá núverandi virkjunum og hvað þá heldur þeim sem þegar hefur verið veitt vilyrði fyrir.
Hveragerðis og áhrifa af virkjunum þar er vart getið í umhverfismati fyrir virkjanir á Hellisheiði. Hver skyldi ástæðan vera fyrir því? Eru áhrifin kannski svo mikil að aðilar treysta sér ekki til að setja þau fram?
Núna er svo komið að það skelfur hér allt og nötrar í orðsins fyllstu merkingu af völdum niðurdælingar á vatni frá Hellisheiðarvirkjun einni hvað þá þegar aðrar hafa bæst við. Með þessu er OR að grípa inn í náttúruna með ófyrirséðum hætti og valda íbúum Hveragerðis og nágrennis verulegum óþægindum og tjóni. Við erum að upplifa jarðskjálfta af völdum OR allt að 4 á Richter skala og gætu orðið stærri. Er OR borgunaraðili fyrir þessu tjóni sem hún er að valda íbúum, ég segi nei!
Ég endurtek: Hvers eiga Hvergerðingar og nágrannar að gjalda gagnvart Orkuveitu Reykjavíkur?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.