Frábært tjaldsvæði

AðstöðuhúsNú á tímum dýrtíðar á eldsneyti er vert að huga að því að vera ekki að leita langt yfir skammt í ferðalögunum. Ekki þarf að fara lengra en í Hveragerði til að finna eitt af bestu tjaldstæðum á landinu.

Aðstaðan er mjög góð og allt fyrir hendi sem ferðalangurinn þarf hvort sem hann er í göngutjaldi eða á stærstu gerð af húsbíl. Aðstöðuhúsið er afar snyrtilegt og í næsta nágrenni er stórt leiksvæði á skólalóð bæjarins. Sundlaugin í Laugaskarði sem þykir með þeim bestu á landinu er steinsnar í burtu. Ekki er heldur langt í bakarí, banka og veitingastaði.

Gönguleiðir eru fjölbreyttar og við allra hæfi. Stutt er t.d. að ganga upp á nýja hverasvæðið fyrir ofan Garðyrkjuskólann. Þá má heimsækja Listasafn Árnesinga sem er nánast á næsta götuhorni og fá sér kaffisopa og sjá metnaðarfullar listsýningar með því.

Fleiri myndir er að finna hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband