Takk fyrir góða grein til varnar Íslendingum!

Það ber að þakka því fólki sem staðið hefur vaktina fyrir Íslendinga í þessu Icesave máli og þá ekki síst InDefence hópnum. Þessi grein Magnúsar Árna er vel skrifuð og tekur á megin atriðunum í vörnum okkar varðandi Icesave kúgunina og það óréttlæti sem verið er að reyna að beita okkur. Það er ómetanlegt að eiga svona fólk sem er tilbúið að fórna tíma sínum og nota skynsemi sína til að vinna með þessum hætti fyrir þjóðina á neyðarstundu.

Vitanlega skömmustum við okkar fyrir þessa bankaorma sem hafa stórskaðað álit þjóðarinnar erlendis.  Þá verður að sækja til saka sé það mögulegt eftir löglegum leiðum á grundvelli réttarríkisins. Þar með er ekki sagt að við eigum að borga allan brúsann því að það var fleira sem klikkaði en íslenska eftirlitið og íslensk stjórnvöld.


mbl.is Skammast sín fyrir bankana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband